Sumar hugmyndir eru ótrúlega einfaldar en geta þó létt manni lífið svo um munar. Hér fyrir neðan má finna samantekt á afar sniðugum ráðleggingum af ýmsu tagi sem margir ættu að geta nýtt sér.

Vefjið jólaseríunum utan um herðatré og komið í veg fyrir að þurfa að eyða ómældum tíma að leysa úr flækjum þegar kemur að því að skreyta fyrir næstu jól.

Merkið lyklana með mislitu naglalakki til aðgreiningar.

Notið plastklemmur af brauðpokum til að merkja snúrurnar undir tölvunni.

Notið greiðu til að halda naglanum, þá er engin hætta á að slá á puttana.

Notið klósettrúllur til að koma skipulagi á snúrurnar.

Krækið öryggisnælu innan í undirkjólinn eða buxurnar til að koma í veg fyrir að stöðurafmagn láti flíkurnar loða saman.

Þræðið keðjur á skartgripum í gegnum drykkjarrör til að koma í veg fyrir flækjur. Sniðugt t.d. þegar verið er að ferðast með skartgripi.

Setjið hringi sem notaðir eru til að hengja upp sturtuhengi á herðatré og þá er komin fyrirtaks geymsla fyrir slæður, trefla eða bindi.

Hellið salti yfir egg sem hefur lent á gólfinu. Bíðið á fáeinar mínútur þar til eggið hefur dregið í sig saltið. Eggið þykknar og það verður mun auðveldara að þrífa það upp.

Ef lítill hlutur hefur dottið í gólfið og endað þar sem erfitt er að ná til, er sniðugt að skella nælonsokk framan á ryksuguna og festa með teygju. Svo má einfaldlega ryksuga hlutinn upp.

Notið Post-it til að grípa rykið næst þegar borað er í vegg.

Oft nægir að leggja trésleif yfir pottinn til að koma í veg fyrir að sjóði upp úr.