Kanntu ekki að stoppa í sokka? Er ullarpeysan frá ömmu farin að rakna upp? Þarf að þrengja kjólinn fyrir jólin? Engar áhyggjur! Nú verða klæðskerar Borgarbókasafnsins notendum innan handar með saumaverkefnin stór og smá fyrsta mánudag í mánuði á svokölluðu Saumakaffi í Árbæ.
Ekki verður saumað fyrir þá sem ætla að nýta sér aðstoðina heldur fá þeir einungis ábendingar og góð ráð um það hvernig best sé að bera sig að. Elínborg Ágústsdóttir og Andzelina Kusowska Sigurðsson munu sá um ráðgjöfina en þær eru báðar klæðskeramenntaðar ásamt því að vera bókaverðir hjá safninu.
Upplagt fyrir þá sem eru að velta einhverju fyrir sér varðandi saumaskapinn, hvort sem um byrjendur eða lengra komna er að ræða. Það er alltaf gott að fá ráðgjöf og spjalla um þau verkefni sem unnið er að.
Einnig verða haldin örnámskeið í saumaskap og viðgerðum líkt og verið hefur og verður hægt að nálgast upplýsingar um þau á heimasíðu og Facebook síðum safnsins.
Saumavélar eru nú til reiðu í Borgarbókasafninu í Árbæ fyrir þá sem þurfa á að halda. Tvær venjulegar saumavélar eru þar auk svokallaðar overlock vélar. Í Saumahorninu er einnig ágætis aðstaða til að taka upp snið. Þar geta gestir því saumað frá grunni en einnig er tilvalið að koma með flíkur og annað sem þarfnast viðgerðar.
Saumakaffið hefst mánudaginn 2. september kl. 16:30-18:00 í Borgarbókasafninu Árbæ. Næstu dagar fram að áramótum verða 7. október, 4. nóvember og 2. desember.