Það er stutt í stykkishólm

Það er staðarlegt heim að líta þegar ekið er út Helgafellssveitina og Stykkishólmur blasir við ökumanni og öllu hans föruneyti. Og varla verður sýnin guðdómslegri en þegar ekið er upp á hæðina þar sem gamla bókasafnið í plássinu stendur eins og sfinx í öllu sínu veldi yfir firðinum breiða og ferðamanni er litið yfir húsin í bænum sem hafa flest hver endurheimt sína fyrri reisn sakir áhuga heimamanna á varðveislu gamalla húsa. Það er meinningarbragur á þessum bæ í bestu merkingu orðsins - og þar þrífst greinilega samfélag sem er í ríkri sátt við umhverfi sitt og uppruna. Helgarferð í Hólminn er innistæðurík ávísun á dásamlega tíð, hvort heldur með gistingu á Hótel Egilsen eða Hótel Fransiskus sem bráðum verður opnað - og svo mat eins og hann verður bestur á Sjávarpakkhúsinu eða Plássinu og öðrum þeim greiðaskálum sem eru reknir af rífandi sjálfstrausti í einum fallegasta kaupstað landsins sem er aðeins í liðlega tveggja tíma ökuferð frá Reykjavík - og raunar Akureyri líka ...