Smjörklípur og smjörklípuaðferðir.
Er það eitthvað ofan á brauð?
Nei, ofan á kött reyndar.
Reyndar ofan á lifandi kött.
Smjörklípa er tungutak sem kom í umferð hinn 3.september 2006 í Kastljósþætti.
Og er í dag brúkað í opinberri umræðu til að beina athyglinni frá eigin vandamálum eða athöfnum með því að benda á eitthvað annað bitastæðara.
Smjörklípan hefur þann tilgang einann að beina athyglinni frá kjarna málsins og þannig burt frá aðalatriðinu.
Orðtakið skýtur upp kollinum endrum og sinnum í umræðum.
Glöggir kverúlantar - eins og ég - eru iðnir við að benda á smjörklípuaðferðina síðan hún var fyrst nefnd.
Konungar smjörklípunnar eru núna þeir Illugi og Sigmundur Davíð.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra er allur í skít vegna fjármálavafsturs síns.
Orka Illuga fer í að bera af sér sakir um ORKA ENERGY og fær hann handlangara sína á Ríksútvarpinu til að kynna smjörklípuna, tilkomu Rásar 3.
Hinn konungur smjörklípunnar er Sigmundur Davíð Gunnlagsson forætisráðherra sem kynnti (a) að kanna ætti millilandaflug á Egilstöðum og á Akrueyri og (b) viðbyggingu við steinkumbaldan við Austurvöll og (c) byggingu nýrrar Valhallar á Þingvöllum og (d) að gefa ætti þjóðinni í afmælisgjöf árið 2018 hús undir stofnun Árna Magnússonar og (e) selja húsnæði Landsspítalans við Hringbraut með gróða undir hótelstarfsemi og (f) byggja síðan nýjan spítala á lóð RÚV við Efstaleiti.
Andstæðingar ESB aðildar kynntu smjörklípu: viðræðuslit í miðju læknaverkfallinu og ólgu á vinnumarkaði.
Sigmundur Davíð henti þetta á lofti í janúar s.l.
Pólitískir hrossakaupmenn, Framsóknarmaðurinn Björn Ingi Hrafnsson fann upp á þessu ósanna snjallræði ásamt Framsóknarmanninum Atla Ásmundssyni.
Báðir eru þó til í að segja satt ef það er Sjálfstæðisflokknum til meins.
Sálargöfgi beggja þessara Framsóknarmanna eru öllum kunnur sem ekki þekkja þá.
Smjörklípan er aðferð, en enginn máttur í sjálfri sér.
Það er unnt að nota hana hvort heldur er til ills eða góðs.
Og sannast sagna er hún eins og stendur miklu meir notuð til ills en góðs.