Mörg fyrirtæki hafa prófað nýjar aðferðir við að skipuleggja vinnutímann.
Hinn svokallaði “sveigjanlegi vinnutími” sem var vinsæll fyrir síðustu aldamót er að verða úrelt fyrirbrigði að margra mati enda er hann oft bara afsökun fyrir því að vinna lengur. Með því að tryggja að fólk komist heim á réttum tíma verður sveigjanlegur vinnutími óþarfur og “fyrirsjáanlegur” vinnutími tekur við.
Þessi “sveigjanleiki” er hugsanlega orsökin fyrir streitunni sem við sjáum oft í upphafi og lok dags þegar vinnandi mæður og feður eru að keyra á ofsahraða til að skila eða ná í börnin sín í og úr skóla eða íþróttatímum. Að auki hefur það komið fram í rannsóknum að stytting vinnutíma hefur ekki komið niður á afköstum í ákveðnum starfsstéttum. Nýlega prófaði opinber stofnun að kanna áhrif styttingar vinnutíma á afköst. Greidd var föst yfirvinna á viku sem leiddi til þess að yfirvinna og laugardagsvinna lagðist af strax. Fólkið vann bara betur.
Að vera kominn heim á réttum tíma á að vera eitt af verkefnumum á “to-do”- verkefnalista dagbókarinnar þinnar. Sumir líta á “fund með fjölskyldunni” klukkan hálf sex sem mikilvægan fund sem má ekki missa af. Víða úti á landi fer fólk heim í hádeginu og borðar mat með fjölskyldunni, hlustar á fréttirnar og fær sér smá blund. Þvílíkur lúxus og lífsgæði!
Það eru ekki bara hin tæknivædda X og Y kynslóð sem mun krefjast breytinga á vinnutíma og vinnuskipulagi, heldur kemur krafan líka frá eldra starfsfólki sem vill að frítímanum þeirra sé sýnd virðing.
X kynslóðin sem er fædd á tímabilinu 1965 til 1977 og Y kynslóðin sem kom í kjölfarið, „lyklabörnin“ sem ólu sig mikið til upp sjálf, krefjast sveigjanleika og vilja ráða tímanum sínum sjálf. Þessi kynslóð leggur mikla áherslu á frítíma og vilja síður taka þátt í lífsgæða-kapphlaupinu. Þau hafa engan áhuga á gullúri eftir 50 ára starf hjá sama fyrirtækinu og vilja vinna við skapandi og ögrandi starf. Þessi kynslóð mun vinna á allt að 30 vinnustöðum á starfsævinni samkvæmt nýrri könnun. Þau vilja “vinna til að lifa en lifa ekki til að vinna” eins og sagt er.
Breytingin er þegar byrjuð. Google í Dublin hefur sagt starfsfólki sínu að skilja eftir tölvurnar þegar það fer heim úr vinnunni. Daimler lætur eyða tölvupósti sem kemur til starfsfólks í fríi. Mörg fyrirtæki hafa áttað sig á mikilvægi þess að fríið sé notað til að vera í fríi en ekki í vinnunni, til að hlaða batteríin og koma fersk til baka.
Þeir sem fara heim úr vinnunni á réttum tíma eru ekki lengur álitnir latir eða verkfælnir heldur vel skipulagðir og afkastamiklir. Í bestu fyrirtækjunum mun Parkinsons lögmálið ríkja: verkin taka þann tíma sem þeim eru gefin og klárast áður en lokatíminn er liðinn.
Með þessu eykst framleiðni starfsfólks og stjórnenda og Ísland kemst aftur í hóp þeirra landa sem eru með hæsta framleiðni og þjóðarframleiðslu á unna klukkustund.