Svaf í toyotunni á hringveginum

Forsetaframbjóðandinn Sturla Jónsson var ekki lengi að safna tilskildum fjölda meðmælenda með forsetaframboði sínu. Hann þeyttist um landið á Toyotunni sinni, einsamall, og tókst að safna 3000 undirskriftum á 21 degi en hver frambjóðandi þarf að hafa að lágmarki 1500 undirskriftir að baki sér.

Sturla var gestur í síðdegisþætti Tóta í útvarpi Hringbrautar FM 89.1 á mánudag þar sem hann ræddi áherslur sínar í forsetaframboðinu og sagði frá vel heppnaðri þeysireið sinni um landið.

Sturla ætlar sér ekki að eyða stórfé í framboðið og segir allar tölur um þann fjölda milljóna sem forsetaframboð kosti óhjákvæmilega vera út úr öllu korti. Hann hlær að þeim.

“Það er búið að segja okkur að þetta séu alveg gríðarlegir fjármunir. Ég fór hringinn og það kostaði mig 35 þúsund krónur eða 40 þúsnd krónur í bensín. Ég svaf bara í bílnum mínum.”

Sturla reif einfaldlega aftursætin úr gömlu Toyotunni sinni og kom þar fyrir rúmdýnu og lagði svo af stað. Ég geri það sem ég get og er ekki að gera meira. Ég er ekki að slá lán út á þetta eða annað því að ég vil standa í lappirnar þegar ég er búinn að þessu,” sagði Sturla að það væri “stórkostlega ýkt að þetta þurfi að kosta svona ofboðslega mikið.”

Ástþór Magnússon kom í viðtal á eftur Sturlu og upplýsti að hann hafi einnig lokið söfnun um 3000 undirskrifta. Báðir frambjóðendurnir furðuðu sig aftur á móti á því að kjörstjórnir hefðu ekki enn fallist á að taka á móti listunum. Allt sé þó tilbúið þeirra megin.

Hlustið á þáttinn allan hér. (Viðtalið við Sturlu hefst uþ.þ.b. á mínútu 21:00)

Síðdegisþáttur Tóta er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18.

Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.