Stundum er það svo að lítil súpuskál getur breytt afstöðu fólks til hádegismatar. Þannig er því farið um austurlensku súpuna á Fylgifiskum við Suðurlandsbraut. Það er nefnilega einhver ástæða fyrir því að hún hefur verið á matseðli staðarins í 13 ár án þess að nokkru sinni hafi verið breytt um svo mikið sem smáatriði í uppskriftinni. Þessi okkurgula dásemd er ekki einasta svo góð á bragðið að samlíking við himnaríki er nærtækust heldur er hún líka svo matarmikil og lystug undir tönn að maður kveður staðinn sem annar og betri maður en þangað var borið að. Eiginlega er ekki hægt að hugsa sér betri hádegisbita en þennan fljótandi heilsubita sem ber af öðrum súpum suðvestanlands ...
Súpan sem breytir þínu lífi
Fleiri fréttir
Nýjast