Heimili og varnarþing íslenskrar sjálfbærni er að finna í Sólheimum í Grímsnesi, en þangað er upplagt bíltúrsskotfæri fyrir stærstan hluta landans sem er vanalega að velta því fyrir sér hvað gera eigi af sér í suðvestansvælunni á sunnudegi. Það er einhver lífsfylli sem Sólheimar færa hverjum gesti og gott ef ekki innri friður og alger núvitund í kaupbæti. Það hægir á hverju skrefi manns að ganga á milli listhúsa, greiðaskála og garðhýsa í þessu einstæða samfélagi sem Sólheimar eru. Þar eru sunnudeginum einstaklega vel varið.
Sunnudagsbíltúr í sólheima
Fleiri fréttir
Nýjast