Sunneva einars byrjuð með syni bjarna ben

Áhrifavaldurinn og samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Einarsdóttir og Benedikt Bjarnason eru eitt nýjasta par bæjarins. Benedikt sem er 21 árs, úr Garðabæ er sonur Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og Þóru Margrétar Baldvinsdóttur hönnunarráðgjafa.

Á Vísi kemur fram að Sunneva sé tveimur árum eldri en Benedikt. Þá segir að parið hafi nú nýverið opinberað sambandið fyrir vinum og kunningjum. Sunneva hefur slegið í gegn á Instagram þar sem hún situr oft fáklædd fyrir en leggur mikla vinnu í myndirnar.