Stund hefndarinnar?

Sú spurning vaknar hvort það geti verið tilviljun ein sem ræður því að upplýsingar innan úr Landsbankanum um aflandsfélög og –reikninga íslenskra ráðamanna koma fram á yfirborðið núna, eftir að nýi Landsbankinn hefur gengið í gegnum hvert hneykslismálið á fætur öðru. Stjórnendur bankans hafa sólundað milljörðum af almannafé með því að selja eignir á stórfelldu undirverði til valinna aðila á sama tíma og gengið er fram af óbilgirni við að hirða eignir af fyrirtækjum og einstaklingum, sem verið hafa í viðskiptum við bankann.

Vitað er að rannsókn á vegum alþjóðlegra samtaka rannsóknarblaðamanna er grunnurinn að væntanlegri umfjöllun Kastljóss um íslenska eigendur aflandsfélaga. Væntanlega hefur sú rannsókn staðið yfir í einhverjar vikur eða jafnvel mánuði. Það vekur samt athygli að fram til þessa hafa einungis komið fram upplýsingar um félög sem Landsbankinn stofnaði fyrir sína viðskiptavini fyrir hrun. Ekki voru allir íslenskir stjórnmálamenn í viðskiptum við Landsbankann.

Nú hefur fjármálaráðherra beitt sér fyrir því að Bankasýsla ríkisins mun hreinsa út stjórnendur Landsbankans og bankaráðið. Forsætisráðherra hefur gagnrýnt framgöngu stjórnenda bankans í Boprgunarmálinu harðlega. Þá koma allt í einu upp á yfirborðið mjög skaðlegar upplýsingar um þrjá helstu ráðherra ríkisstjórnarinnar vegna viðskipta þeirra við Landsbankann fyrir hrun. Þó að viðskiptin hafi verið við gamla Landsbankann er ólíklegt annað en að upplýsingar um þau hafi legið í nýja bankanum sem tók við réttindum og skyldum gamla bankans í byrjun október 2008. Er þetta tilviljun, eða eru stjórnendur Landsbankans að svara fyrir sig?