Stjörnuvefarinn og ritstjóri dv selja slotið: amish-hlaða fylgir í kaupbæti! sjáðu myndirnar!

Guðmundur R. Einarsson, betur þekktur sem GRE og Lilja Katrín Gunnarsdóttir, leikkona og ritstjóri DV eru að selja glæsilega íbúð í Melgerði í Kópavogi. Íbúðin er fjögurra til fimm herbergja og 110 fermetrar að stærð. Er hún staðsett í rólegri götu á besta stað þar sem stutt er í alla þjónustu. Þá fylgir íbúðinni 15 fermetra hús en það er líkt og smækkuð útgáfa af Amish-hlöðu. Þar er bæði hiti og rafmagn en GRE reisti húsið sjálfur.

\"\"

Í garðinum má sjá Amish-hlöðuna sem nýtist t.d. sem frábært herbergi fyrir unglinga. Neðst í umfjöllun má sjá ðra mynd af þessu stórmerkilega húsi.

Eigendur íbúðarinnar eru eins og áður segir Lilja Katrín og GRE. Lilja Katrín er ritstjóri DV en hún hefur starfað í fjölmiðlum í meira en 15 ár. Hún var m.a. ritstjóri Séð og Heyrt, umsjónarmaður innblaðs Fréttablaðsins og vefstjóri Mannlífs. Þá hefur hún unnið í dagskrárgerð og er menntuð leikkona. GRE er einn besti vefhönnuður landsins og hefur tekið þátt í að hanna síður eins og Daily Mail og CNN. Þá er GRE maðurinn á bakvið nýtt útlit DV.IS. Ásamt því að reka sitt eigið veffyrirtæki, Vefgerðin, er GRE markaðs- og þróunarstjóri DV og hefur unnið að þróun DV og undirmiðla. Þá hefur hann unnið náið með ritstjórn Frjálsrar fjölmiðlunar.

\"\"

Ásett verð er 49.9 milljónir króna.

Í lýsingu kemur fram að um er að ræða tvíbýli með sameiginlegum stórum garði. Þá er stutt í skóla, leikskóla og Kópavogslaug og útivistarsvæði að Rútstúni. Þá fylgir með frístandandi hús, smækkuð útgáfa af Amish-hlöðu. Húsið er 15 fermetrar að stærð og er ekki inni í fermetratölunni. Amish-hlaðan skiptist í geymslu og herbergi. Þar er rafmagn, hiti og smá pallur.

\"\"

Í lýsingu segir að stofan og borðstofan séu saman í opnu björtu rými. Úr borðstofu er farið út á fínan pall með skjólgirðingu að hluta og með aðgengi út í snyrtilegan garð sem er sérafnotaflötur íbúðar.

\"\"

„Eldhúsið er bjart og gott með eldri innréttingu og bakaraofn í vinnuhæð. [...] Úr holi / skála er komin inn á góðan svefnherbergisgang með eldri fataskáp. Svefnherbergin innan íbúðar eru þrjú og erfataskáp. Svefnherbergin innan íbúðar eru þrjú og er hjónaherbergið afar rúmgott og er með fataherbergi.“

\"\"

HÉR GETUR ÞÚ SKOÐAÐ ÍBÚÐINA Í 3D

\"\"

\"\"

Við endum þetta svo á Amish-hlöðunni sjálfri!

\"\"

Þá er opið hús þann 27. október á milli klukkan 15:30 og 16:00