Stefnir í meiri ferðalög en fyrir hrun

Samkvæmt upplýsingum frá Isavia eru Íslendingar farnir að ferðast jafn mikið til útlanda og fyrir hrun. Gangi spár eftir á þessu ári, verður fjöldi Íslendinga í hópi brottfarafarþega meiri en árið 2007, bóluárið fræga.

Flestir eru meðvitaðir um aukningu erlendra ferððamanna sem streyma inn um gáttir Keflavíkurflugvallar. En hvernig er umferð okkar mörlandanna út til umheimsins um sömu gáttir háttað?

Guðni ​Sigurðsson, upplýsingafulltrúi hjá Isavia svarar þeirri spurningu. \"Í farþegaspá fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir um 10,0% aukningu íslenskra ferðamanna milli ára en þær tölur eru byggðar á upplýsingum sem fengnar hafa verið frá stærstu notendum Keflavíkurflugvallar. Gangi sú spá eftir mun heildarfjöldi íslenskra brottfararfarþega verða um 495-500 þúsund. Árið 2007 voru íslenskir brottfararfarþegar 469.885 samkvæmt tölum á vef Ferðamálastofu.

Svar Isavia er viðbragð við fyrirspurn sem lesandi sendi Spyr.is og komið var áfram til Isavia. Sjá má allt um málið og fleiri fréttir á spyr.is, samstarfsfyrirtæki Hringbrautar.