Sörfuðu naktir á þaki rútunnar

Það verða skrautlegar sögur sagðar í Mannamáli kvöldsins þar sem leikarinn og söngvarinn Helgi Björns tekur sjálfan sig til kostanna og segir frá mörgum sérkennilegustu augnablikum sinnar rokksögu.

Þar á meðal er sagan af því þegar hin þrjátíu ára gamla og goðsagnarkennda tónleika- og dansiballagrúppa Síðan skein sól var að rúnta til baka af félagsheimilunum úti á landi, en þá var gjarnan stoppað við góðan hyl í ánum á leiðinni suður og stungið sér til sunds í hrollköldu straumvatninu - og leikurinn svo toppaður með æðarnar þandar uppi á þaki rútunnar þar sem menn héldu sig til þerris, naktir og sörfandi gegnum bjartan næturhimininn; nokkur sjón að sjá, já, en fáir vissulega á ferli.

Hann segir frá ástæðum þess að hann og eiginkonan Vilborg Halldórsdóttir hafa alltaf getað búið saman frá því áður en þau fóru saman í leiklistarskóla, hvernig vinur hans Rafn Jónsson í Grafík undirbjó kveðjuathöfn sína með fádæma nostursemi og æskuárin heima á Ísafirði fá líka sitt rúm, meðal annars bítlaæðið sem öllu breytti og næsta prik var fest á lok af málningardós svo úr varð fyrsti gítarinn og teningunum var jafnframt kastað.

Þess má geta að hundurinn Kátur, tólf vetra, er aukagestur þáttarins, en hann hefur fylgt Helga frá þriggja mánaða aldri.

Mannamál byrjar klukkan 20:30 í kvöld.