Áhrifavaldurinn Sólrún Diego á erfitt með og kvíðir fyrir að fara í matvöruverslanir. Ástæðan er að þau sem fylgja henni á Snapchat og Instagram eiga það til að skipta sér af því hvað hún er að kaupa inn fyrir heimilið. Sólrún greinir frá því á Instagram að í hverri viku sé óskað eftir að hún deili innkaupalista heimilisins með aðdáendum sínum. Nú hefur hún ákveðið að hætta að deila hinum vinsæla lista. Í frétt á vef DV er vitnað í Sólrúnu:
„Fólk leyfði sér alltof mikið að skipta sér af því hvað ég var að kaupa. Stoppa mig í búð ef ég skaust í miðri viku að kaupa eitthvað sem vantaði eða kommentaði á það ef við keyptum „take away“ eða fórum út að borða.“ Þá bætir hún við:
„Mér var alltaf farið að kvíða fyrir að fara í búðina. Mér finnst ég deila alveg nógu miklu með ykkur tengt mat og aðferðum sem við notum.“ Þá segir Sólrún að lokum:
„Ég veit að enginn meinar neitt illt en of mikil afskiptasemi getur verið yfirþyrmandi.“