Nýr þáttur Valgerðar Matthíasdóttur um galdur og gersemar íslenskra veitingahúsa, sem mörg hver hafa vakið heimsathygli hóf göngu sína á Hringbraut í síðustu viku og fer vel af stað.
Í þætti tvö af Leyndarmáli veitingahúsanna fer hún á Gló í Fákafeni þar sem hannaður hefur verið markaður, kaffihús, verslun og veitingastaður eins og víða hefur verið gert erlendis.
Í þættinum fá áhorfendur að skoða hráa iðnaðarlega hönnunina og fá svo í kaupbæti nokkur kokkatrix hjá margverðlaunaða sjónvarpskokkinum vinsæla, Sollu Eiríks. Hún býr til ævintýralega góða Raw Brownie. Og svo mun hún einnig meðal annars kenna fólki að búa til lasagna og bestu pesto sósur í heimi!
Leyndarmál veitingahúsanna með Völu Matt hefst klukkan 20:00 í kvöld, en fyrsti þátturinn er nú sjáanlegur á vef stöðvarinnar.