Það fer vel á því að mæla með Lífríki Íslands þegar snjóa leysir og náttúran vaknar af værum blundi. Þetta stórvirki Snorra Baldurssonar líffræðings er kærkomið í flóru náttúrulífsbóka og fyllir raunar upp í skarð í þeim fjallgarði öllum. Bókin fetar listilega veginn millum viðurkenndra fræða og heillandi upplýsingar fyrir allan almenning, sett fram með svo myndríkjum og skiljanlegum hætti að lesandinn er löngu búinn að gleyma stund og stað uppi í sóffanum með allt lífríki lands og sjávar fyrir framan sig.
Sökktu þér ofan í lífríkið
Fleiri fréttir
Nýjast