Tveir athyglissjúkir kumpánar voru fyrirferðarmiklir um liðna helgi í Facebook-umræðum þar sem þeir svöluðu þjóðþekktri sýniþörf sinni með misgáfulegum orðsendingum sín á milli. Hér að að sjálfsögðu um að ræða þá Bubba Morthens og Hannes Hólmstein Gissurarson.
Fátt merkilegt kom fram í orðaskaki þeirra annað en það að Hannes Hólmsteinn hélt blákalt fram því öfugmæli að “hann stæði með þjóðinni” og væri í liði með henni.
Hannes Hólmsteinn sagði eftirfarandi: “Ef menn láta kaupa sig til fylgis við annarleg sjónarmið eða ágjarna auðjöfra, þá er ég óhræddur að segja þeim til syndanna.”
Alveg dásamlegt! Hannes þykist aldeilis vera maður með mönnum að segja “ágjörnum auðjöfrum” til syndanna. En er það nú svo? Hannes Hólmsteinn hefur fyrst og fremst þjónað sérhagsmunahópum innan Sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina. Nú ver hann kvótakónga og hina fáu ríku. Hann leggjur almenningi aldrei lið í einu eða neinu. Hann hefur allan sinn feril gætt þess að rækta peningamenn, fyrirtæki og stofnanir sem hafa getað látið fé af hendi rakna til hans. Ýmisst beint til Hannesar Hólmsteins sjálfs eða til “verkefna” sem hann hefur búið til og verið í forsvari fyrir. Sumt af því hefur komið upp á yfirborðið en annað hefur aldrei litið dagsins ljós en verið notað til fjáröflunar.
Hannes Hólmsteinn hefur í áratugi verið sníkjudýr á íslenskum auðmönnum, fyrirtækjum og stofnunum. Um það eru fjölmörg dæmi og margir í íslensku atvinnulífi þekkja það af eigin raun. Hann hefur ekki efni á að þykjast vera einhver málsvari almennings eða þjóðarinnar. Hann gagnrýnir ekki “ágjarna auðmenn”. Þvert á móti ver hann sérhagsmuni hinna fáu og ríku – enda sækir hann til þeirra styrki og fjárhagslegan stuðning. Hann stendur ekki með þjóðinni en hann sækir óhikað fé í sameiginlega sjóði þjóðarinnar eins og nýlegt dæmi um styrki frá fjármálaráðuneytinu sýnir. Hannesi tókst að sækja milljónir í ríkissjóð til skýrsluskrifa um vondu útlendingana sem orsökuðu hrunið að hans mati.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur verið einn helsti hugmyndasmiður frjálshyggjunnar í Sjálfstæðisflokknum á liðnum árum og áratugum. Hann hefur hvatt til frjálsræðis í viðskiptum og þess að einstaklingar leggi fé í atvinnurekstur, taki áhættu til ávinnings.
Ekki fer neinum sögum af því að Hannes hafi tekið nokkurn þátt í atvinnulífi Íslendinga eða fjárfest í fyrirtækjum eða á markaði. Hann fæst einungis við að segja öðrum fyrir verkum en tekur engan þátt sjálfur. Hann hvetur til dáða í frjálsu atvinnulífi en hefur aldrei starfað þar sjálfur. Hannes Hólmsteinn hefur verið opinber starfsmaður alla sína æfi. Hann hefur ekkert lagt af mörkum í atvinnulífi landsmanna. Eftir að löngu námi hans lauk hefur hann dvalið í vernduðu umhverfi akademíunnar þar sem hann hefur þegið laun sín úr ríkissjóði en hvatt aðra til að fjárfesta í hinu frjálsa atvinnulífi og taka áhættu sem hann tekur ekki sjálfur.
Einu tengsl Hannesar við atvinnulífið er að sækja þangað fjárstyrki fyrir sjálfan sig og verja sérhagsmunahópa.