Skrímsladeild á eftir mér

Það hefur verið grátbroslegt að fylgjast með tilburðum skrímsladeildar flokksins undanfarna daga. Þeir hafa falsað ummæli frá mér í kommentadálkum á netinu. Nafn mitt hefur ítrekað komið við sögu þar sem mér eru gerðar upp skoðanir í ýmsum málum. Einkum er áberandi að mér er ætlað að hneykslast á rannsóknarblaðamönnum Stundarinnar. Mörg ummæli hafa birst í mínu nafni sem snúast um að gera lítið úr prýðilegum úttektum Inga Freys Vilhjálmssonar á spillingarmálum Illuga Gunnarssonar.

Skemmst er frá því að segja að ég hef ALDREI tekið þátt í því orðaskaki sem fram fer í svonefndum kommentadálkum á vefnum enda tel ég að sú umræða bæti engu vitrænu við þjóðfélagsumræðuna. Ég hef ekki uppi nein áform um að breyta um stefnu í því efni.

Haldi þessi viðleitni skrímsladeildar áfram, þá er það mér að meinalausu. Ég hef grennslast fyrir um það hvaðan þetta kemur. Tel mig vita hvaða minnipokamaður er þarna að verki en vil þó ekki nafngreina hann að svo stöddu. Hann er hluti af litlum – og vandræðalegum – hulduher á vegum skrímsladeildar Valhallar.

Þar sem sérstaklega hefur verið reynt að nota nafn mitt gegn Inga Frey Vilhjálmssyni á Stundinni, þá vil ég taka fram að ég ber mikla virðingu fyrir eljusemi og vinnubrögðum rannsóknarblaðamanna Stundarinnar og les flest sem þeir senda frá sér. Ingi Freyr og félagar hans eru afkastamiklir og agaðir rannsóknarblaðamenn. Því er ekki við öðru að búast en að skrímsladeildir spilltra stjórnmálamanna beini spjótum sínum að þeim.