Skoðaðu það sem er nýmálað

Það er eiginlega ekkert huggulegra en að skella sér í kúltúrgöngu á syfjulegum sunnudegi; byrja kannski á brauðsneið og latte á Mokka og kíkja inn í litlu búðirnar sem selja list og hönnun íslenskra frumherja í Skólavörðuholtinu en enda svo kannski túrinn á einu safnanna, Listasafni Íslands, Listafni Reykjavíkur að ógleymdu Þjóðminjsafninu. Í þetta sinn mælum við með ferð á staðinn hans Kjarvals á Klambratúni en þar getur að líta framhald sýningarinnar Nýmálað með hreint glæsilegum strokum íslenskra pensla.