Skelltu þér til útlandsins akureyrar

Akureyri á þessum árstíma; eigum við eitthvað að ræða það frekar? Jú, kannski ögn, því það jafnast barasta ekkert á við notalega helgarferð til höfuðstaðar hins bjarta norðurs og síðla í mánuðinum hennar Góu. Akureyri er bara eitthvað svo mátulega útlensk, ekki of stór og klárlega ekki of lítil með dásamlega fjölbreytta flóru af hágæða veitingahúsum, söfnum, kaffihúsum og djammstöðum – og ef mæður og feður eru eitthvað að óttast að ekkert sé að gera fyrir börnin á staðnum þá er Lísa í Undralandi auðvitað svarið í gamla Samkomuhúsinu uppi á litla Barðsnefi. Já, eða keila, skautar, dásemdir Kjarnaskógar – og náttúrlega Hlíðarfjall, sjálfur þjóðarleikvangur íslenskra skíðamanna með brekkum sem eru á heimsælikvarða hvað lengd og lögun varðar, jafnt fyrir bretti og skíði.