Skelltu þér hringinn um vatnsnes

Vatnsnes í Húnaþingi vestra er eitt best varðveitta náttúrugersemi landsins, en akstur hringinn í kringum Nesið er upplagður fyrir hvern þann ferðalang sem er á ferðinni um norðvestanvert landið. Það er nefnilega svo að alltof margir aka hugsanalaust í gegnum Húnaþingið á leið sinni milli höfuðstaða landsins og gleyma því að skoða stórkostlegt landslagið og dýralífið á þessum slóðum.

Þessi sannindi voru Þór Magnússyni fyrrverandi þjóðminjaverði ofarlega í huga þegar hann mætti nýverið í viðtal við Sigmund Erni í heilsu- og útivistarþáttinn Lífsstíl en hann er höfundur nýjustu árbókar Ferðafélags Íslands sem fjallar um einmitt Húnaþing vestra. Þór er fæddur og uppalinn á Hvammstanga og þekkir sveitirnar allt í kring eins og lófann á sér. Hann segir útsýnina til Strandafjallanna einstaka á þessum slóðum þar sem selurinn baðar sig meðfram allri strandlengjunni - og þar sé ekki einasta Hvítserk að sjá í öllu sínu veldi heldur samfelld svæði stórkostlegrar náttúru ...