Skelltu þér á skálmöld

Sögumenn miklir hafa fylgt landsmönnum allar aldir Íslandsbyggðar – og ber að virða hlut þeirra í menningarsögunni; kynngi sögumannsins auðgaði svo lífið í landinu á meðan listir voru af skornum skammti að segja má að lengst af öldum hafi hann haldið hugsun allri í almennilegu lagi. Nú um stundir er Einar Kárason þessi maður sem heldur uppi sagnalistinni í landinu – og er nú mættur með dóttur sína Júlíu í Landsnámssetrið að leiða okkur inn í upphaf sagnabálksins um Sturlungatímann tætta og tregafulla. Einar er leikhús í eðli sínu og dóttirin dásamleg viðbót við frásagnagleði föðurins. Og skal hér því sagt; skutlist í Borgarnes og njótið sagnalistar í botn.