Það er vægast sagt mjög sérstök tilfinning að sitja ofan á ólgandi hver sem rymur út úr sér óhljóðunum um leið og hann umvefur mann hlýju og spekt. Svona líðan er til sölu á bökkum Laugarvatns fyrir 3200 krónur á parið – og það skal sagt hér bæði og skrifað að þeim peningum er vel varið. Nýi baðstaðurinn í plássinu, Fontana, er einkar vel heppnuð viðbót við heilsumenningu Íslands og gefur Bláa lóninu lítið eftir í upplifun. Hvergi á landinu er líklega að finna jafn magnaðar gufur frá náttúrunnar hendi og á þessum glæsilega baðstað – og þá er heldur ekki vitlaust að prófa saununa á staðnum milli þess sem lagst er út í hressilega kalt Laugarvatnið í svo sem eins og fimm mínútur og finna að því loknu æðarnar víkka út og flytja líkamanum þvílíkan hita að allt saman jafnast það á við bestu nautnir ævinnar.
Sittu ofan á ólgandi hver
Fleiri fréttir
Nýjast