Sigmundur davíð er algerlega búinn að vera

Síðdegisþáttur FM Tóta á Hringbraut 89.1 var keyrður hart áfram í dag og dró dám af æsingnum í þjóðfélaginu. Ólafur Arnarson, hagfræðingur, mætti og fór yfir stöðuna eins og hún var síðdegis. Friðrik Indriðason, blaðamaður, sagði frá því hvernig sú grimma enska pressa hefur tekið á Sigmundi Davíð og hans niðurstaða var einfaldlega: Á alþjóðavísu er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands, algerlega búinn að vera.

Sá vaski og margreyndi blaðamaður Reynir Traustason ræddi íslenska spillingu og sagðist telja víst að dagar Sigmundar Davíðs í forsætisráðuneytinu yrðu taldir eftir tólf klukkustundir. Og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, fundarstjóri mótmælanna á Austurvelli, tók símann galvaskur og þakkaði hroka Sigmundar Davíðs fyrir mikla mætingu. Síðan slitnaði símtalið.

Guðbjörn Jónsson, Moggabloggari og fyrrverandi ráðgjafi, kom Sigmundi Davíð til varnar. Sagði frá áformum sínum um að kæra RÚV og Kastljós til ríkissaksóknara fyrir aðför að forsætisráðherra og sagði Ólaf Arnarson hafa farið með slíkan róg í þætti Tóta að við liggi tveggja ára fangelsi.

Tónlistin í þættinum var síðan að sjálfsögðu sérvalin með Sigmund Davíð, Framsóknarflokkinn og ástandið í samfélaginu í huga en þátturinn hófst á þessum inngangsorðum stjórnandans:

„Í dag sé ég mér ekki annað fært en að elta fjöldann og setja fókusinn á tryllinginn í kringum Sigmund Davíð, forsætisráðherra, tortólurnar hans og þá röð bömmera sem dunið hafa á ríkisstjórn Íslands undanfarið.

Þetta hefur ekkert að gera með rótgróna andstyggð mína á Framsóknarflokknum, heldur geri ég mér bara grein fyrir því að ef ég stekk ekki á gremjuvagninn þá get ég alveg eins farið beint á barinn og misþyrmt ykkur næstu tvo tímana með íslenskri tónlist af lagalista stöðvarinnar.

Við erum jú öll að tala um og hugsa um special edition Kastljóssþáttinn síðan í gær og fyrirhuguð mótmæli á Austurvelli klukkan fimm, eftir tæpa klukkustund og ég mun að sjálfsögðu reyna að ná sambandi á völlinn þegar leikar standa sem hæst og færa ykkur sem hafið ekki smekk fyrir pottaglamri helstu fregnir af vígvellinum.“

Hugsað var fallega til þingflokks Framsóknarflokksins sem mætti svo nývaknaður og óformlegur til fundar fyrir hádegi að bannað var að taka myndir af mannskapnum.

Halló Norður-Kórea!

„Og auðvitað megum við ekki sjá þingmenn framsóknar í sauðskinnskóm og lopapeysum frá Kína. Þau gætu orðið hallærisleg í hugum okkar.

Annars skil ég ekkert í vanþakklæti þessarar guðsvoluðu þjóðar sem nú grenjar yfir því að Sigmundur Davíð hafi gert okkur að fíflum á vettvangi alþjóða. Við höfum alltaf verið fífl í augum hins siðmenntaða heims og getum ekki skrifað það á Sigmund Davíð þótt hann hafi lagt sig allan fram um að vera eins og fábjáni í öllum utanferðum sínum. En eigum við ekki í það minnsta að þakka fyrir að hann strunsaði á dyr í viðtalinu í Ráðherrabústaðnum í samstæðum skóm?

Þetta lið þarf nú varla að vera feimið við að mæta til fundar í náttfötum og baðslopp eftir að þingflokksformaðurinn Ásmundur Einar lét mynda sig í grænum jakkafötum. Saumuðum úr eiturgrænum gardínum úr Suðursveit frá síðari hluta 19 aldar.“

 

Hlustið á þáttinn allan hér.

Síðdegisþáttur Tóta er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18.

Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.