Sigga: hef aldrei upplifað mig hinsegin

Ein ástsælasta söngkona landsmanna um áratugaskeið, Sigríður Beinteinssdóttir deildi lífssögu sinni með áhorfendum Hringbrautar í viðtalsþættinum Mannamáli í gærkvöld - og talar þar öngva tæpitungu.

Þátturinn hefur þegar vakið mikil athygli, enda er óhætt að segja að viðtalið sé eitt það allra persónulegasta sem Sigga Beinteins hefir veitt nokkrum fjölmiðli. Þar talar hún meðal annars mjög opinskátt og afslappað um samkynhneigð sína sem heefur svo að segja aldrei þvælst fyrir henni, en Sigga kveðst ekkert skilja í öllu því eilífa skápatali sem umlykur allt það tal; hún hafi aldrei upplifað sig inni í einhverjum skáp og þaðan af síður segist hún geta lýst sér sem hinsegin manneskju - og þoli raunar ekki þá nafngift; hún sé bara Sigga og hún sé ekkert svo öðruvísi en annað fólk.

Sigga hefur átt mikilli velgengni að fagna um langt árabil, en einnig kynnst mótvindinum sem á stundum hefur staðið beint í fangið, nú síðast fyrir ári þegar hún glímdi við blóðtappa eftir mikla streitutíma og svefnleysi við uppeldi tvíburanna sinna sem hún á með Birnu Maríu Björnsdóttur, sambýliskonu sinni sem gekk með börrnin, en annar þeirra hefur átt við heilsuvandamál að stríða. Hún viðurkennir í viðtalinu að ólíkt Birnu Maríu hafi hún sjálf kannski veriðp orðin fullt til gömul að eignast börn, rétt tæplega fimmtug og kannski ekkert unglamb lengur til að vaka heilu og hálfu næturnar. Sigga lýsir þessum erfiða tíma í lífi sínu af nákvæmni og miklu hispursleysi - og vill með því upplýsa allan almenning um orsakir, einkenni og eftirköst þessa krankleika.

Viðtalsþáttinn Mannamál með Siggu Beinteins má nú nálgast á vef Hringbrautar, en hann verður endursýndur á stöðinni í dag og um helgina.