Það er erfitt að vera framsóknarmaður um þessar mundir af skiljanlegum ástæðum. Ritstjóri málgagns Framsóknar stendur í ritdeilum við fréttamenn RÚV í þeim tilgangi að sverja af sér flokkinn.
Að bendla fólk eða miðla við Framsókn getur kallað yfir menn hótanir, kærur og jafnvel meiðyrðamál.
Því þarf nú að ganga hægt um þessa gleðinnar dyr.
Það einkennilega fyrirbæri \"siðanefnd\" blaðamanna hefur úrskurðað og ávítað Hringbraut fyrir að klína framsóknarstimpli á vammlausan mannvin vegna tilvitnana í skrif mín.
Í byrjun janúar fjallaði ég um tilvist mína hér á Hringbraut. Ég birti þann pistil að nýju vegna þessa úrskurðar.
Texti hans fylgir hér á eftir.
http://www.hringbraut.is/frettir/pistlar/oli-vid-upphaf-spennandi-ars
Siðanefnd hefur mjálmað
Fleiri fréttir
Nýjast