Kínverskur málsháttur segir að það heyrist meira í því sem þú gerir en í því sem þú segir.
Þetta á vel við núverandi ríkisstjórn. Skoðum þetta nánar:
1. Hún predikar að krónan sé sterkasti gjaldmiðill í heimi og frábær gjaldmiðill fyrir Ísland og Íslendinga. Hún meinar bara aðra Íslendinga en forsætisráðherrahjónin sem geyma sinn auð á aflandseyjum í erlendum gjaldmiðli. Krónusinnar í orði, evrusinnar á borði.
2. Stjórnin segist vilja lækka vexti en segir krónuna vera framtíðargjaldmiðil þjóðarinnar. Stjórnin treystir sér ekki að hafa áhrif á vexti, hún veit að ástæða vaxtaþrældóms þjóðarinnar er gjaldmiðillinn. Krónan ein og sér veldur um 4% vaxtaálagi á útlán í dag samkvæmt upplýsingum bankanna.
3. Hún segist vilja afnema verðtryggingu en heldur fast í hana og forsætisráðherrann segir engan gjaldmiðil í heimi jafn sterkan og öruggan og verðtryggðu íslensku krónuna.
4. Hún talar um að lækka matvælakostnað heimilanna en bannar svo innflutning á algengum matvörum. Sá litli innflutningur á landbúnaðarvörum sem leyfður er ber háa tolla.
5. Hún segist aðhyllast vestræna samvinnu en vinnur hörðum höndum að því að spilla sambandi og minnka samskipti við vinaþjóðir í Evrópu.
6. Hún vill frjáls viðskipti en gerir hið gagnstæða með auknum höftum og tollvernd á matvæli með nýjum búvörusamningi.
7. Hún lofar að auka samkeppni en tryggir að landbúnaðurinn er undanþeginn samkeppnislögum. Hún festir til 10 ára samninga við bændur, samninga sem kosta neytendur meira en 200 milljarða króna.
8. Hún vill jafnrétti en eykur misréttið með því að búa til tvö hagkerfi í landinu: krónuhagkerfi með háum vöxtum og höftum og evruhagkerfi með lágum vöxtum fyrir útvalda aðila.
9. Hún vill jafnrétti en styður misjafnt vægi atkvæða sem leiðir til þess að kjósendur á suð-vesturhorninu eru með hálft atkvæði miðað við aðra kjósendur. ÖSE hefur gert ítrekað alvarlegar athugasemdir við misvægi atkvæða sem er með því mesta sem gerist í Evrópu.
10. Hún lofaði þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB en sendi þessi í stað skilaboð til Brussel um að viðræðunum væri slitið.
James Freeman Clarke, þekktur fyrirlesari í Bandaríkjunum á 19. öld sagði þetta um fólk í pólitík: “The difference between a politician and a statesman is that a politician thinks about the next election while the statesman think about the next generation.”
Núverandi ríkisstjórn er ekki einu sinni að hugsa um næstu kosningar. Til þess að ná kjöri þurfa loforð og gerðir að fara saman.
Nýtt frjálslynt stjórnmálaafl, VIÐREISN, fjallar um öll ofangreind málefni í sinni stefnuskrá en frelsi, ábyrgð og samkeppni eru leiðandi gildi Viðreisnar
Í stefnuskrá Viðreisnar er meðal annars lögð áhersla á stöðugleika, skilvirkari ríkisrekstur, aukna samkeppni á öllum sviðum, lækkun vaxta, frjáls og haftalaus viðskipti, þjóðaratkvæðaafgreiðslu um framhald ESB viðræðna, jafnt vægi atkvæða og að almannahagsmunir verði teknir fram yfir sérhagsmuni.