Það skorti ekki skemmtisögurnar í samtali þeirra Hafsteins Egilssonar og Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í gærkvöld, en þar vaar þessi landskunni og rómaði framreiðslumaðurr og þjónn í essinu sínu svo um munaði.
Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar.
Þessi einn eldheitasti KR-ingur landsins er raunar alinn upp í Hafnarfirði fram undir fermingu og kynntist þar heimilisbasli Guðrúnar móður sinnar og drykkjuskap föðurins Egils Hansen sem var flinkasti bifvélavirki bæjarins og kom iðulega heim í hádeginu á drossíu forseta Íslands sem hann einn fékk að halda við og laga - og strákarnir hans, Hafsteinn, Sigurjón Magnús, Egill og Gunnar Smári fengu stundum að sitja í fagurgljáandi rennireiðinni um stræti og götur plássins suður í firði sem þótti nú ekki ónýtt á þeirri tíð.
Eftir að drykkja föðurins gerði út af við fyrirtæki hans í Firðinum fluttist fjölskyldan í Vesturbæinn og þaðan gekk Hafsteinn svo að segja yfir götuna úr Hagaskóla að Hótel Sögu og sótti um framtíðarstarfið hjá Konráð hótelstjóra Guðmundssyni sem kenndi Hafsteini fagið, svo og sjentilmennsku og stundvísi upp á punkt og prik. Sögurnar af Astra-barnum, framan við Grillið, streyma úr munni Hafsteins í þættinum, svo sem af manninum sem skakklappaðist svo eftirminnilega yfir Hagatorgið að afloknu skvetteríi að fótspor hans sáust þar um allt í nýfallinni mjöllinni, eða af sjenever-manninum sem sagði Hafsteini alltaf sömu söguna kvöld eftir kvöld, mánuð eftir mánuð af því hann hafði alltaf gleymt því sem hann var að tala um deginum áður, en svo brosir Hafsteinn líka stórum þegar hann minnist Alla ríka sem eitt sinn var orðinn svo leiður á öllum fína matnum á Grillinu, jafnt í hádegi sem að kveldi, að hann bað Hafstein að skjótast niður á Bæjarins bestu í kjölfötunum sínum, hvaðan þjónninn dyggi kom með tvær pulsur með öllu og færði alsælum útgerðarmanninum á diski.
Og svo er það kóngasagan; Ólafur Noregskonungur átti fríkvöld í einni opinberu heimsókninni til Íslands og bað Hafstein að þjóna sér uppi á svítunni sem heldur betur gekk eftir og endaði raunar á því að þeir sátu saman í sóffa framan við sjónvarpið og horfðu á landssleik Íslands og Sovétríkjanna eins og væru þar saman komnir gamlir skólabræður að missa sig framan við æsispennandi jafnteflisleik.
Svo kom að því að Hafsteinn hætti sjálfur að drekka; hann sá það á svip bræðra sinna sem allir voru hættir í brennivíninu á þeim tíma að nú ætti hann greinilega að setja sjálfur tappann í flöskuna. Og hann gaf sér það í fimmtugsafmælisgjöf, blessunarlega, væri líklega dauður ella eða gjaldþrota offitusjúklingur, en það sem mest var um vert; hann langaði ekki til að enda ævina sem fulli afinn.
Mannamál eru frumsýnd öll fimmtudagskvöld klukkan 20:30.