Vonandi nota menn tækifærið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins nú um helgina til að ræða um þá ágætu hugmynd að sameina Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn. Hannes Hólmsteinn Gissurarson kom fram með þessa hugmynd fyrir nokkrum árum enda er hann kominn af Framsóknarmönnum í Húnavatnssýslu. Hafi hugmyndin þótt verð skoðunar þá, er hún enn betri núna eftir að flokkarnir hafa unnið saman í ríkisstjórn nýrra formanna flokkanna og líkjast hvor öðrum sífellt meira.
Þá væri einnig ástæða fyrir Vinstri græna, sem einnig halda landsfund um helgina, að ræða um sameiningarkosti á vinstri væng. Allir þessir flokkar eru í tilvistarkreppu og verða að gera eitthvað stórkostlegt til að koma í veg fyrir enn frekari niðurlægingu eins og kemur ítrekað fram í skoðanakönnunum. Lítum á þá nýjustu frá MMR sem birt var í dag:
Píratar fengju 34,2% og 22 þingmenn ef kosið yrði núna. Sjálfstæðisflokkur með 21,7% og 14 þingmenn. Flokkurinn hefur tapað 5 þingmönnum frá kosningum og 3,5% fylgi frá síðustu könnun. Framsókn, VG og Samfylking eru á bilinu 10% til 12% með 7 eða 8 þingmenn. Björt framtíð er með 6,5% og 4 þingmenn. Þannig eru ríkisstjórnarflokkarnir með samtals 21 þingmann og hafa tapað 17 þingmönnum frá kosningum. Stjórnin er kolfallin. Evrópusinnuðu flokkarnir, Píratar, Samfylking og Björt framtíð, gætu myndað ríkisstjórn með 34 þingmenn samtals.
Við þessar aðstæður hljóta stjórnarflokkarnir, Framsókn og Sjálfstæðisflokkur, að hugsa sinn gang. Því ekki að sameinast til að freista þess að ná auknum styrk? Það er hvort sem er enginn munur á stefnu þessara tveggja flokka. Það er sami rassinn undir þeim báðum. Dæmi:
- Í utanríkismálum, einkum í afstöðu til Evrópu, eru báðir flokkar með gegnheila einangrunarstefnu og einkennast af útlendingahræðslu.
- Hvorugur flokkanna vill vinna að jöfnun atkvæðisréttar landsmanna. Báðir telja að dreifbýlið eigi að hafa tvöfalt atkvæðavægi á við höfuðborgarsvæðið.
- Í landbúnaðarmálum vilja báðir flokkar greiða milljarðatugi úr ríkissjóði í styrki til bænda á hverju ári. Nýr búvörusamningur er í undirbúningi.
- Í sjávaútvegsmálum vilja báðir flokkar standa með sægreifum gegn þjóðinni.
- Báðir flokkarnir leggja sig fram um að gæta hagsmuna hinna fáu og ríku.
- Enginn munur er á skattastefnu flokkanna.
- Enginn sýnilegur munur er á stefnu flokkanna í menntamálum, heilbrigðismálum og húsnæðismálum.
- Hvorugur flokkanna hefur kjark til að gera nauðsynlegar breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins.
Það skyldi þó aldrei fara svo að Hannes Hólmsteinn yrði loks spámaður í föðurlandi. Maður sem er hvort sem er alltaf með opinn munninn hlýtur á endanum að hitta á eitthvað sem nær í gegn.