„Það er algjörlega klárt að það verður þá ekki bara nema með byssuvaldi gegn þjóðinni farið í það að selja eignir til einhverra vafasamra manna,“ sagði hagfræðingurinn Ólafur Arnarsson þegar fyrirhuguð sala hlutar í Landsbankanum og annarra ríkiseigna bar á góma í síðdegisþættinum BadaBing! á útvarpsstöðinni Hringbraut FM 89.1 í gær.
Í raun væri útilokað að selja ríkiseignir í því andrúmi tortryggni sem nú ríki í samfélaginu. „Það verður allt að koma upp á borðið,“ sagði Ólafur. Hann sagði að meðal annars yrði að koma fram hverjir eru á „þessum Panama-lista og það verður að keyra hann saman við afskriftalista bankanna, þeirra nýju og gömlu.“
Ólafur ræddi í þættinum meðal annars Panama-skjölin og stöðu forsetans í ljósi nýrra upplýsinga um að tengdafjölskylda hans hafi átt reikninga á aflandseyjum. Hann sagði forseta eða maka hans ekki geta verið að standa í „einhverju viðskiptastússi“ á embættistímanum.
Þá sagðist Ólafur telja að Ólafur Ragnar Grímsson hafi gert stórmistök með því að reikna sig að þeirri niðurstöðu að hann væri ómissandi fyrir íslenska lýðveldið. Ólafur Ragnar standi miklu veikari og auðsigraðari nú en fyrir helgi og Ólafi kæmi ekki á óvart ef hann finndi leið til að bakka út úr þessu. „Það var enginn að kalla eftir honum.“
Ólafur sagðist vera klár á því að nú þegar væri kominn fram frambjóðandi sem geti sigrað Ólaf Ragnar í forsetakosningunum en Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðing, telji hann hins vegar fallinn á tíma. Hann sé búinn að draga það of lengi að segja af eða á. -ÞÞ
Hér má lesa pistil Ólafs Arnarsonar um stöðu forsetans á Hringbraut.is
Hægt er að hlusta á þáttinn hér. (Samtalið við Ólaf Arnarson hefst á mínútu 48:22)
BadaBing! er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18
Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.