Í gráma hversdagsins verður venjulegi maðurinn næsta auðvelt fórnarlamb vanans; hann drattast þetta inn í mánudaginn og veit ekki fyrr en það er kominn föstudagur – og allan þann tíma nartar hann bara í það næsta sem höndin nær að grípa. En við erum það sem við borðum, hversdagslega. Það er allt í lagi að sukka svoltítið í sætindum um helgar, en þess þá heldur að vera viss um öll sín vítamín á virkum dögum. Og því er hér sagt; taktu þær fræin í hönd, keyptu nóg af þeim, en blandaðu saman sólblómafræjum, graskersfræjum og chiafræjum í nettan naslpoka. Og viti menn; trefjar, kalk og steinefni, ásamt E-vítamíni fyrir húðina; allt saman í einum hnefa.
Sagt er að til séu fræ
Fleiri fréttir
Nýjast