Skólavörðustígurinn er að verða skemmtilegasta gata höfuðborgarinnar. Og enda þótt Tösku- og hanskabúðin hafi yfirgefið svæðið er þar ennþá að finna sögufræga staði millum Hallgrímskirkju og hornsins niðri við Laugaveg - og nægir þar að nefna Mokka, móður allra kaffihúsa á Íslandi. Þessi merkilegi stígur sem liggur upp á holtið háa státar af fjölbreytilegri flóru allra handa knæpa og kaffihúsa, fatabúða og listmunaverslana og allt þar innan um eru hönnuðir og klæðskerar, tannlæknar og lögmenn og vesalings tukthúslimirnir eru svo á sínum hefðbundna stað inni í gamla steinhúsinu sem byggt var á þessum stað af því það þótti nógu langt út úr bænum á sinni tíð. Og eru þá ónefndir allir matsölustaðir stígsins langa - og er vert að hæla svo sem eins og einum þeirra sérstaklega. Hann heitir KOL og er ofarlega í holtinu, vitaskuld með afbragðs mat og vel framreiddan, en það er andrúmsloftið sem færir honum þessa aukastjörnu sem öllu skiptir vilji maður bjóða maka sínum út að borða án þess að taka nokkra áhættu. Þjónustan á KOL er ekta, fumlaus og trúverðug, þeirrar gerðar að gestum finnast þeir velkomnir og megi og eigi að vera þarna lengi. Það er nefnilega svo í veitingahúsaflórunni í dag að það er himinn og haf á milli þjónustu ... sem er allt frá því að vera fráhrindandi í tómleika sínum og fávisku yfir í það að vera fagmannlega aðlaðandi - eins og á þessum dásamlega stað sem heitir KOL ...
Rétta andrúmsloftið er á kol
Fleiri fréttir
Nýjast