Rekstrarstjóri ríkisins – laust til umsóknar.

Íslenska ríkið óskar að ráða REKSTRARSTJÓRA sem getur hafið störf strax. 
 
Rekstrarstjórinn (hún eða hann) skal að vera harður í horn að taka og óháður þrýstihópum og sérhagsmunaaðilum. Hann þarf að líta á sig sem hagsmunaaðila skattgreiðenda í ríkisrekstrinum og hafa góða reynslu af rekstrarstjórnun, samningatækni og kostnaðaraðhaldi. 
Hlutverk Rekstrarstjóra ríkisins er að auka framleiðni hjá ríkinu og tryggja skilvirkni í rekstri opinberra fyrirtækja. Hann á að sjá til að öll opinber fyrirtæki sýni sparsemi og aðhald í rekstri. Hann skal sjá til að ríkisfyrirtækin fari aldrei fram úr fjárlagaheimildum og skal hann gera forstjórum ríkisfyrirtækja það ljóst að fjárlög eru lög og lög má ekki brjóta.
 
Rekstrarstjóri ríkisins skal kynna sér skilgreint hlutverk opinberra stofnana og tryggja að þær séu aðeins að sinna þeim verkefnum sem þeim ber skylda til að rækja samkvæmt lögum. Rekstrarstjórinni skal einnig tryggja að opinber fyrirtæki séu ekki að stunda samkeppni við fyrirtæki í almennum rekstri.
Fyrstu verkefni rekstrarstjórans eru þessi:
 
1. Tryggja að öll aðföng ríkisins verði boðin út: vörur, þjónusta og annað og tryggja að ávallt sé keypt hjá þeim aðila sem býður lægsta verð.
2. Gera forstöðumönnum ríkisstofnana ljóst að fari stofnanir þeirra fram úr fjárlögum verði greiðslur til þeirra stöðvaðar og að lokað  verði fyrir yfirdráttarheimildir ríkisstofnana
3. Sameina stofnanir ríkisins þannig að í stað 182 stofnana verði þær aðeins um 50. Þannig fækkar yfirmönnum og stórum skrifstofum og yfirbygging ríkisins minnkar verulega.
4. Selja alla ráðherrabílana og nota leigubíla þegar þörf er á ráðherraakstri.
Rekstarstjórinn þarf að geta hafið störf strax.