Persóna Einars blaðamanns er byggð á nokkrum mönnum sem ég hef kynnst og umgengist um dagana, þar á meðal á sjálfum mér, segir Árni Þórarinsson, rithöfundur og blaðamaður sem er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld.
Það ætti engum að leiðast að horfa á samtal þeirra vinanna í þætti kvöldsins, en Árni, sem er að mati margra trúverðugasti krimmahöfundur landsins og einstaklega farsæll á því sviði, jafnt heima og erlendis, ræðir ekki einasta um tilurð glæpasagnanna sinna í viðtalinu heldur og ástæðu þess af hverju íslenski krimminn er orðinn jafn vinsæll og sannfærandi og raun ber vitni, en það má meðal annars þakka góðu verki íslenskra blaðamanna frá áttunda og níunda áratug síðustu aldar þegar fjölmiðlar afhjúpuðu í raun og sann samfélag eyjaskeggja við ysta haf, en sú mynd hafði lengi verið teiknuð upp af því að þar væri allt svo saklaust og gæfulegt að við fullkomnun lægi. Svo reyndist auðvitað ekki vera þegar blaðamenn byrjuðu að skyggnast inn í kima samfélagsins og segja raunasögurnar sem þar var að finna - og eftirleikinn má meðal annars sjá í æsispennandi krimmabókum reynslumikilla blaðamanna eins og Árna sjálfs.
Hann hóf blaðamennsku sína rétt rösklega tvítugur Reykjavíkurstrákurinn - og það er saga að segja frá því hvernig sú mikla manneskja sem Matthías Johannessen er ræð Árna til starfa, en það var með ógurlega löngu og starandi augnaráði í gættinni á skrifstofunni hans niður í Aðalstræti. Ferill Árna hefur verið farsæll allar götur síðan, jafnt sem blaðamaður, gagnrýnandi og rithöfundur, en hann lýsir því vel í viðtalinu hvernig blaðamennskan breyttist með tilkomu Dagblaðsins og síðar Helgarpóstsins undir lok áttunda áratugarins, en þar gegndi Árni starfi ritstjóra um árabil.
Hann þykir af mörgum sérlundaður og hefur svo sem aldrei fylgt tískustraumum á fullorðinsárum sínum, klæðist ávallt samskonar fötum og síðhærður flókinn situr sem fyrr á hvirfli hans, en þess utan sér hann enga ástæðu til að vera með farsíma við hönd, gamla fastlínan heima á Ásvallagötu dugar enn - og ekkert mun breyta því úr þessu. Þá er hann lítt fyrir morgunverkin, vaknar helst ekki fyrr en undir hádegi, sem er siður sem haldist hefur frá fyrstu Moggaárunum þegar dagurinn byrjaði upp úr hádegi með ógnarlöngum ritstjórnarfundum Matta Jó sem ætluðu engan endi að taka.
Nýjasta bók Árna um Einar blaðamann, sem er hættur að drekka fyrir all löngu, heitir Þrettán dagar hefur fengið firnagóðar viðtökur og þykir eiturbeitt eins og jafnan áður úr penna Vesturbæingsins sem mætir á skjáinn í kvöld klukkan 20:30 og talar mannamál.