Marvel-myndasöguveldið hóf óslitna sigurgöngu sína í bíó 2008 með fyrstu myndinni um Iron Man, þar sem Robert Downey Jr. fór á kostum í hlutverki alkóhólíseraða hrokagikksins og auðmannsins Tony Stark sem gerðist ofurhetja í mögnuðum Iron Man búningi sínum. Í kjölfarið hafa komið tvær Iron Man-myndir til viðbótar, tvær um þrumuguðinn Þór, tvær um ofurhetjugengið The Avengers, ein mynd um Hulk, ein um Ant-Man og ein um Deadpool og nú síðast þriðja Captain America-myndin, sem ber undirtitilinn Civil War.
Myndin byggir á samnefndri myndasögu þar sem Avengers-ofurhetjugengið klofnar vegna pólitísks ágreinings. Þótt hér sé vissulega um Captain America-mynd að ræða eru flestar hetjur Avengers-myndanna mættar til leiks. Fyrstan ber auðvitað að nefna Iron Man en Black Widow, Scarlet Witch, Hawkeye, War Machine, Winter Soldier, Vision og einhverjir fleiri láta sig þó ekki vanta. Plack Panther kemur svo nýr inn og Ant-Man mætir til leiks auk þess sem Spider-Man er loksins kominn heim og birtist hér í sinni fyrstu Marvel-mynd. Hulk og Þór sitja þó hjá í þessari umferð.
Margir vilja meina að með Civil War sé komin fram besta Marvel-myndin til þessa. Ég veit ekki alveg hvort ég er tilbúinn til þess að ganga svo langt en þessi mynd er engu að síður alveg frábær Marvel-skemmtun að hætti hússins.
Rétt eins og í The Avengers-myndunum tveimur tekst einhvern veginn að leyfa öllum ofurhetjunum að njóta sín og eiga sín móment, sem er ekkert einfalt mál þegar annars eins fjöldi berst um plássið. Þar fyrir utan tekst samt að halda því vandlega til haga að þetta er Captain America-mynd en ekki The Avengers 3. Kafteinninn er í forgrunni og þar er ekki síst einbeittur vilji hans til þess að verna sinn gamla stríðsfélaga Bucky, sem er orðinn hinn varasami Winter Soldier, og útsendari hins illa, sem veldur alvarlegum klofningi hjá ofurhetjunum.
The Avengers hafa áður verndað jörðina fyrir utanaðkomandi ógn og meira að segja áhlaupi klækjagoðsins Loka. Þessi varnarbarátta hefur þó ekki verið án saklausra fórnarlamba og stórkostlegs eignatjóns og þegar óbreyttir borgarar falla í stórum stíl í einni aðgerð Hefnendanna, í upphafi myndar, ákveða flest ríki heims að setja Hefnendurna undir Sameinuðu þjóðirnar og þeir fái ekki að hreyfa sig nema með leyfi þaðan.
Tony Stark, sjálfur Iron Man, er samþykkur þessu en Captain America telur af og frá að hægt sé að bjarga heiminum ítrekað ef til þess þurfi sérstakt umboð Sameinuðu þjóðanna. Hetjurnar klofna og fylkja sér ýmist um kafteininn eða Iron Man og óhjákvæmilega skerst að lokum harkalega í odda þar sem vopnabræður og systur berjast.
Stærsti bardagi hetjanna í myndinni á sér stað á flugvelli í Þýskalandi og er alveg magnað sjónarspil. Allir sýna hvað í þeim býr og maður er í bölvuðum vandræðum með hverjum skal halda vegna þess að manni þykir nú ósköp vænt um allar þessar hetjur sem eiga auðvitað að berjast hlið við hlið en ekki innbyrðis. Þeim finnst þetta líka heldur ekkert gaman og í myndinni er unnið skemmtilega með hversu þessum félögum reynist erfitt að lúskra hvor á öðrum.
En þrátt fyrir sálarangist dyggra aðdaénda er Civil War frábær skemmtun þar sem ekkert skortir upp á hasarinn og töffið en húmorinn lætur aðeins undan, enda kannski ekki að undra þegar staðan er jafn alvarleg og raun ber vitni.
Robert Downey Jr. skyggir sem fyrr á aðra leikara, algerlega frábær í hlutverki Iron Man/Tony Stark en hin standa sig þó öll með stakri prýði. Scarlett Johansson alltaf jafn töff Black, Elizabeth Olsen er massa kúl og aðeins of sexí sem Scarlet Witch, ung kona sem ræður illa við háskalega ofurkrafta síns, og Chris Evans klikkar ekki sem hinn hjartahreini og réttsýni Captain America.
Senuþjófur myndarinnar er svo Tom Holland sem leikur ekta Spider-Man á gelgjunni og innkoma Lóa í Marvel-heiminn lofar svo sannarlega góðu fyrir fyrstu Spider-Man myndina frá Marvel, Homecoming, sem er væntanleg á næsta ári.
Daniel Brühl leikur skúrkinn í myndinni. Manninn sem stuðlar að klofningi hetjanna með ýmsum vélabrögðum. Hann er hins vegar ekki mjög eftirminnilegur né öflugur í sambanburði við þá sem áður hafa gert The Anegers lífið leitt. Fyrir utan auðvitað að það er vandséð að þörf sé á sérstökum skúrki þegar Iron Man og Captain America eru orðnir óvinir. Sem betur fer er þó ákveðnu jafnvægi haldið í átökum Iron Man og Captain America ólíkt myndasögunni þar sem Tony Stark/Iron Man gerðist fullkominn skíthæll. Góðu heilli er okkur í #TeamIronMan hlíft við þeim ósköpum og áhorfendur geta með sæmilega góðri samvisku tekið afstöðu í deilu ofurhetjanna.
Annars gengur allt upp í þessari þvottekta Marvel-mynd sem leggur út þræði fyrir Spider-Man mynd og næstu The Avengers-mynd. Marvel hefur enn ekki klikkað og allt virðist vera á hreinu í þeim herbúðum þótt allt sé upp í loft hjá hetjunum okkar.
Civil War er meiriháttar Marvel-mynd, frábær skemmtun og skilur við mann hungraðan í frekari ævintýri þessa ofurhetjugengis sem gerir allt rétt á meðan Batman, Superman og DC-liðið er með allt niður um sig.
Áfram Iron Man!
4 stjörnur
Captain America: Civil War (2016)
Leikstjóri: Anthony Russo, Joe Russo
Aðalhlutverk: Chris Evans, Robert Downey Jr., Scarlett Johansson, Sebastian Stan, Daniel Brühl.