Pólitískt einelti skilar engu – hvað reynir Sjálfstæðisflokkurinn næst?

Sjálfstæðisflokkurinn og málgagn hans, Morgunblaðið, hafa um árabil haldið uppi sjúklegu einelti gegnvart meirihlutanum í borgarstjórn Reykjavíkur, einkum þó sjálfum borgarstjóranum, Degi B. Eggertssyni. Undir forystu hans hefur Sjálfstæðisflokknum verið haldið algerlega valdalausum í borginni frá árinu 2010. Flokkurinn og málgagnið hafa þolað þá staðreynd illa og hafa reynt að koma höggi á borgarstjórann og meirihluta borgarstjórnar með linnulausum árásum og beinlínis rógi nánast í hverri einustu viku um árabil.

Árangurinn af einelti minnihlutans er enginn eins og úrslit margra kosninga staðfest. Kjósendur vilja Sjálfstæðisflokkinn ekki til valda í Reykjavíkurborg eins og dæmin sýna. Svo einfalt er það.

Flokkurinn hefur teflt fram hverjum nýjum, einnota, oddvitanum á færur öðrum. Þeim hefur öllum verið hafnað og þeir hraktir á brott til að ryðja nýjum brautina. Hanna Birna Kristjánsdóttir leiddi lista flokksins í borgarstjórn vorið 2010 og tapaði stórt fyrir Jóni Gnarr, leikara. Hann hafði ekki komið áður nærri stjórnmálum en rúllaði Hönnu Birnu samt upp. Flokkur Jóns Gnarr myndaði meirihluta með Samfylkingunni og óhætt er að segja að Dagur B. Eggertsson hafi ráðið öllu sem hann vildi ráða það kjörtímabil en hann gegndi þá stöðum formanns borgarráðs.

Vorið 2014 fékk Halldór Halldórsson, áður bæjarstjóri á Ísafirði, að leiða lista flokksins, en hlaut háðulega útreið. Kjörfylgið nam einungis 25 prósentum. Halldóri var skipt út í lok kjörtímabilsins fyrir Eyþór Arnalds, sem hafði getið sér orð sem bæjarstjórnarmaður á Selfossi. Hann reyndist einnota eins og hinir, fékk þó 30 prósenta fylgi vorið 2018 en var látinn víkja fyrir kosningarnar vorið 2022. Þá spreytti Hildur Björnsdóttir sig á leiðtogahlutverkinu og fór með fylgi flokksins niður í 24 prósent sem er það lægsta sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur mælst með í sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík frá upphafi.

Hildur virtist halda að hún yrði borgarstjóri í Reykjavík en því fór víðs fjarri. Svo virðist sem hún hafi að mestu dregið sig í hlé það sem af er kjörtímabili og lítið sinnt málefnum borgarinnar. Hún hefur einbeitt sér að barnauppeldi eins og Ragnheiður Alda Vilhjálmsdóttir sem sat í öðru sæti lista flokksins í kosningunum 2022. Flokkurinn hefur því verið nánast forystulaus það sem af er kjörtímabilinu en Kjartan Magnússon, sem skipaði þriðja sætið, hefur verið helsti talsmaður flokksins og haldið uppi linnulausum rógi og útúrsnúningum sem flestir kjósendur sjá í gegnum. Svo virðist sem þær Hildur og Ragnheiður hafi gefist upp, láti lítið fyrir sér fara en þiggi launin sín frá borginni. Ein og hálf milljón á mánuði eru ekki slæm kjör fyrir hóflegt vinnuframlag.

Þrátt fyrir lélega kosningu vorið 2022 hefur fylgi flokksins ekki rétt sig við ef marka má skoðanakönnun sem Heimildin lét Maskínu gera fyrir sig og birt var 18. október sl. Þar stendur Sjálfstæðisflokkurinn í stað þrátt fyrir útreiðina vorið 2022. Samfylkingin, Viðreisn og Píratar bæta verulega við sig en Framsókn tapar miklu fylgi og Vinstri græn eru við það að þurrkast endanlega út. Núverandi meirihluti heldur stöðu sinni.

Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að vera byrjaður að leita að nýjum oddvita fyrir næstu kosningar sem verða vorið 2026. Enn einn einnota leiðtoginn bætist við með Hildi Björnsdóttur og ekki verður séð að neinn í núverandi borgarstjórnarflokki sé líklegur til að fá að spreyta sig næst. Flokkurinn hlýtur að leita að öflugum frambjóðanda til að leiða lista flokksins, einhverjum sem er líklegur til að verða ekki einnota og hefur burði til að hala fylgið upp af botninum sem það lenti á við síðustu kosningar. En hver ætti það að vera?

Það styttist í Alþingiskosningar á Íslandi. Þær gætu orðið á næsta ári og aldrei seinna en árið 2025 þótt fáir trúi því að núverandi ríkisstjórn nái að heyja dauðastríð sitt svo lengi. Það vinnur enginn sitt dauðastríð og takmörk eru fyrir því hve lengi ríkisstjórn getur starfað lifandi dauð eins og staðan er núna. Verði úrslit næstu kosninga í námunda við það sem allar skoðanakannanir hafa gefið til kynna allt þetta ár gæti það hæglega gerst að Sjálfstæðisflokkurinn yrði utan ríkisstjórnar að kosningum loknum.

Þá skyldi enginn útiloka að einhver núverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins væri til í að spreyta sig á því að leiða lista flokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Sá sem væri líklegastur til að geta náð árangri og bætt veika stöðu Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn er vitanlega Guðlaugur Þór Þórðarson, sá reyndi og klóki stjórnmálamaður. Einnig mætti ætla að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefði áhuga á að spreyta sig. Hún ætti alla vega að geta gengið að stuðningi Morgunblaðsins vísum en faðir hannar er stjórnarformaður blaðsins á vegum aðaleigendanna í Vestmannaeyjum. Blaðið hefur lagt sig fram um að halda uppi linnulausu einelti gagnvart borgarstjórnarmeirihlutanum, reyndar án sjáanlegs árangurs hingað til.

Hver veit nema það rofi til í forystumálum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík ef reyndir ráðherrar flokksins verða á lausu.

- Ólafur Arnarson