Fjölskyldusaga Ásdísar Höllu Bragadóttur, fyrrverandi bæjarstjóra Garðabæjar sem lengi vel var framarlega í flokki sjálfstæðismanna, er með hreinum ólíkindum, en sjálf hefur hún borið þrjú mismunandi föðurnöfn um dagana - og skírnarnafni hennar var raunar líka breytt á sínum tíma.
Hún deidi þesssari dramatísku sögu sinni með áhorfendum Hringbrautar í vikunni, en þar settist hún niður með Sigmundi Erni Rúnarssyni í viðtalsþættinum Mannamáli og freistaði þess að rekja í sundur þræðina í lífi allra foreldra sinna, einkum þó og sér í lagi Bebbu móður sinnar, sem heitir fullu nafni Sigríður Stefanía Sívertsen Hjelm sem varð einn daginn að segja dóttur sinni söguna alla þegar Ásdís Halla komst að því fyrir tilviljun að íslenski maðurinn sem hún hélt að væri blóðfaðir sinn, fyrst sá ameríski var það ekki, var heldur ekki þessi raunverulegi örlagavaldur sem líffræðilegur faðir manns er.
Flókið? Já, vissulega - og það er vægast sagt áhugavert að heyra og sjá Ásdísi Höllu lýsa samskiptum sínum við móðurina og feðurna, bræðurna og systurnar í einlægu og opinskáu samtali hennar við Sigmund Erni í kvöld, en sjálf segist hún aldrei áður hafa sagt svo opinberlega frá lífi sínu í nokkrum fjölmiðli hér á landi, svo sem til dæmis því þegar hún laumaði dísum inn fyrir girðingu Litla-Hrauns til að hjálpa þar fanganum bróður sínum, sem þá eins og síðar var staddur á refilsstigum.
Og fyrir þá sem vilja heyra söguna á enda - þessa einu mögnuðustu fjölskyldusögu sem hægt er að hugsa sér - liggur auðvitað beinast við að benda á bókina sem Ásdís Halla hefur skrifað og komin er út á vegum Veraldar, en hún nefnist Tvísaga og situr nú hátt á vinsældalistum bóksala hér á landi - og skal engan undra.
Þáttinn má nú sjá hér í heild sinni hér á vef stöðvarinnar.