Eftir að Katrín Jakobsdóttir lýsti því yfir að hún gæfi ekki kost á sér til embættis forseta hefur staðan galopnast. Katrín hafði mælst með langmesta fylgi þeirra sem taldir eru koma til greina og víst er að flestir þeirra voru vondaufir um framgang í ljósi þess.
Við þessi tíðindi hefur staða Össurar Skarphéðinssonar vænkast til mikilla muna. Hann er nú líklegastur þeirra sem nefndir hafa verið til að geta náð alla leið í mark. Ég ætla að leyfa mér að spá því að hann taki við lyklunum að Bessastöðum þann 1. ágúst nk.
Össur er ekki óumdeildur frekar en aðrir sem hafa látið til sín taka í þjóðfélaginu. En hann hefur fjölmarga kosti sem munu nýtast vel í embætti forseta. Hann er hámenntaður, með doktorsgráðu og hefur búið erlendis í mörg ár sem er nánasta krafa þegar kemur að embætti sem þessu. Maður sem talar ekki ensku eins og innfæddur á ekkert erindi í embætti forseta. Össur hefur verið ráðherra í 4 ríkisstjórnum, þar af utanríkisráðherra í fjögur ár sem skapar honum umtalsvert forskot umfram aðra. Auk þess hefur hann verið umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra. Á ráðherraferli sínum aflaði hann sér virðingar, vinsælda og vináttu margra sem hann átti samskipti við. Þannig er um það talað í atvinnulífinu að hann hafi ávalt verið viðbúinn til samstarfs um hagsmunamál atvinnulífs ogj þjóðarinnar. Víst er að hann mun sækja góðan stuðning inn í hóp hægrisinnaðra atvinnurekenda vegna þessa. Þá spillir ekki fyrir að eiginkona hans er glæsilegur vísindamaður, dr. Árný Sveinbjörnsdóttir.
Fái Össur alvörukeppinaut um embættið, þá býr hann að því að vera vanur baráttumaður. Hann hefur aldrei fengið neitt upp í hendurnar á silfurfati. Hann hefur þurft að berjast fyrir stöðu sinni, fyrst innan Alþýðuflokksins og síðar í Samfylkingunni þar sem hann var kjörinn fyrsti formaður flokksins og náði honum í 32% fylgi þegar best lét. Það met hefur aldrei verið slegið – og verður vísast aldrei slegið. Össur á fjölda vina, samherja og stuðningsmanna jafnt á vinstri væng stjórnmálanna og einnig á miðju og yfir til hægri.
Aðrir alvöruframbjóðendur sem nefndir hafa verið eiga ekki möguleika á eins víðtækum stuðningi og Össur. Þar er verið vísa til sómafólks á borð við Salvöru Nordal, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Ólaf Jóhann Ólafsson, Andra Magnason, Stefán Jón Hafstein og reyndar fleiri.
Össur Skarphéðinsson verður næsti bóndi á Bessastöðum.