Eins og alþjóð veit er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands, orðinn heimsfrægur að endemum og lentur í hakkavél bresku pressunnar sem er ekkert lamb að leika sér við.
Friðrik Indriðason, blaðamaður, var á meðal viðmælenda Tóta í síðdegisþætti hans á útvarpi Hringbrautar í gær en Friðrik hefur fylgst náið með afdrifum forsætisráðherrans í erlendum miðlum.
„Á alþjóðavísu er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands, algerlega búinn að vera. Það er bara þannig,“ sagði Friðrik. Hann benti á að í gær hafi myndbandið af útgöngu Sigmundar Davíðs úr sjónvarpsviðtalinu, sem sýnt var í Kastljósi á sunnudag, verið komið á toppinn á vefsíðu breska blaðsins Daily Mail.
„Þetta er eitt útbreiddasta blað Bretlands og þetta er komið út um alla bresku pressuna. Milljónir Breta eru búnir að sjá þetta og maðurinn er í þeirra augum algert fífl ef maður tekur mark á því sem sagt er í athugasemdum við þessa frétt í öllum miðlum.“
Friðrik benti jafnframt á að Sigmundur Davíð væri sagður einn af „ruddunum tólf“ með vísan til stríðsmyndarinnar The Dirty Dozen, með Lee Marvin, Donald Sutherland og fleiri stjörnum þess tíma í aðalhlutverkum. Þegar ljóst var að Pútín væri þarna ásamt öðrum tólf þjóðarleiðtogum var þetta uppnefni strax gripið á lofti, Pútín og ruddarnir tólf.
„Í alvöru talað. Sigmundur Davíð er svoleiðis búinn að rústa orðspori sínu erlendis að ég efast um að David Cameron bjóði honum á þessa spillingarráðstefnu sína í þar næstu viku,“ hélt Friðrik áfram.
Hann sagði bresku pressuna vera búna að gefa út veiðileyfi á Sigmund Davíð og meðhöndlun íslenskra fjölmiðla væri barnagælur miðað við það hvernig breskir fjölmiðlar taki á sínum ráðamönnum.
Hlustið á þáttinn allan hér. (Viðtalið við Friðrik hefst 1:03:00)
Síðdegisþáttur Tóta er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18.
Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.