Öll erum við einhver fúsi

Blessunarlega hafa birst margir sterkir og eftirminnilegur persónuleikar á hvítu tjaldi íslenskra kvikmynda á þeirri liðlega hálfu mannsævi sem einhver dugur hefur verið í innlendri bíómyndagerð. Fúsi fer á þennan lista, grunsamlega vel leikinn af Gunnari Jónssyni; pipraður strákur í miðaldra líkama sem hefur ekki ennþá lært að fljúga úr hreiðri mömmu sinnar – og ætlar sér það kannski aldrei. En svo þegar skorður losna, leikur líf hans náttúrlega á reiðiskjálfi. Sumsé; það er eitthvað óumræðilega heillandi við þennan karakter.