Það var skiljanlega fagnaðarefni á þrengingartímum Hrunsins, að Íslendingar mættu eiga von á auði fjár vegna vinnslu olíu úr hafsvæði, sem þjóðréttarfræðingar höfðu skipað í sameiginlega lögsögu með Noregi samkvæmt Hafréttarsáttmála S. Þj. Hafsbotninn á Drekasvæðinu okkar við Jan Mayen átti að lofa góðu, en allt Norðurskautið býr yfir verulegum hluta alls þess sem ekki er nýtt er af olíu og jarðgasi í heiminum. Þá þegar fer fram veruleg vinnsla olíu og gass af strandríkjum Íshafsins. En þegar fjær dregur , eins og við Austur Grænland og Jan Mayen eða við mikið dýpi hafsins, er vinnslan enn þá allt of kostnaðarsöm, ekki hvað síst vegna hins fyrirsjáanlega lága olíuverðs.
Á Arctic Circle ráðstefnunni í Reykjavík 2014, sagði rússneskur sérfræðingur að mæta yrði 60 % eftirspurnar framtíðarinnar af olíu og gasi frá Norðurskautssvæðinu þótt sjálfar auðlindirnar séu mikið til óþekktar. Það sem hinsvegar er vel þekkt, eru hin miklu umhverfisáhrif og áhætta sem leit og nýtingu þessa fylgir. Þau vandamál hljóta að vera meginverkefni Norðurskautsráðsins.
Margt greinir á milli viðhorfa til vandamála hafsvæðisins fyrir norðan Alaska og Kanada, norðurameríska hafskautsins annars vegar, og svo evrópska norðurskautsins. Einn er þó sá vandi sem þeim er sameiginlegur og það eru hætturnar samfara borun eftir olíu og gasi á heimskautssvæðinu. Þær deilur hafa staðið síðan 1977 í Bandaríkjunum þá er sett voru lög um víðtæka náttúruvernd – Arctic National Wildlife Refuge lögin, sem einnig fólu í sér bann við olíuborunum í hafinu undan verndunarsvæðinu. Frá því hafa verið veittar undanþágur, svo sem var með mjög misheppnaðar boranir Shell olíufélagsins í Chukci hafsvæðinu undan Alaska í fyrrasumar. Miklar deilur hafa risið út af fyrirætlunum Shell að fá slíka undanþágu enn á ný ár. Obama forseti hefur viljað auka friðunarsvæðið og verður þetta væntanlega enn eitt átakamálið í þinginu.
Bandarískir vísindamenn hafa lagt til að fimm ára hlé verði gert á borunum eftir olíu og jarðgasi á heimsskautssvæðinu. Og Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, sem manna mest okkar sérfræðinga hefur varað við hættunum samfara olíuleit eða vinnslu á Drekasvæðinu, tekur undir þetta með
tillögu um bann í olíuumsvifum fyrir norðan heimskautabaug. Olíuauður er tálsýn og olíuslys við fiskimiðin, lífgjöf Íslendinga, er engrar áhættu virði. Samfylkingin hefur vakið máls á þessu mikla hagsmunamáli og miklill væri sá heiður Alþingismanna að fylgja því eftir allir sem einn.