Ólafur ragnar aftur í framboð!

Ég skil ekki fólk sem skildi þingsetningarræðu forsetans í gær þannig að hann ætlaði ekki aftur í framboð. Þetta las fólk væntanlega út úr orðalaginu \"...set Alþingi í síðasta sinn...\" en gleymdi lykilsetningunni: \"...samkvæmt umboðinu sem þjóðin fól mér\".

Þetta var dæmigerður Ólafur Ragnar - og ég las út úr þessu allt aðra meiningu: Hann ætlar þvert á móti aftur í framboð næsta vor og koma með nýtt umboð til þingsetningar næsta haust. Ekki nóg með það: Hann upplýsti líka í ræðunni hvaða ástæðu hann ætlar að nota þegar hann tilkynnir um framboð sitt einn ganginn enn. Hann gagnrýndi nefnilega harkalega  framgang mála við fyrirhugaðar breytingar á stjórnarskránni og taldi að menn væru þar að glannast með sjálfa grunnstoð lýðveldisins.

Þannig hefur Ólafur Ragnar undirbúið jarðveginn fyrir eftirfarandi tilkynningu með hækkandi sól: Ég hef áður lýst því yfir að ef þannig rót og lausung sé í stjórnmálum landsins, að sjálf stjórnskipanin eigi undir högg að sækja, þá verð ég að láta eigin hag víkja og fórna mér einu sinni enn í þágu lands og þjóðar. Ég hef því tekið þá erfiðu ákvörðun fyrir mig persónulega að gefa kost á mér í forsetakosningunum í vor, en treysti því jafnframt að þjóðin hafi skilning á því, að þegar ég verð búinn að tryggja festu í stjórnskipan landsins þá muni ég standa upp úr forsetastóli fyrr en ella og hverfa til annarra verka í þágu alls mannkyns.

Þessi atburðarás kæmi heim og saman við þá skoðun margra, að Ólafur Ragnar muni aldrei láta af forsetaembættinu ótilneyddur. Það eina sem gæti komið í veg fyrir að Ólafur Ragnar bjóði sig fram aftur er að fram á sviðið stígi mótframbjóðandi sem Ólafur telur að geti haft hann undir í kosningum. Það sé nefnilega bara eitt sem hjá Ólafi Ragnari er yfirsterkara viljanum til að sitja Bessastaði þar til yfir lýkur: óttinn við að tapa í kosningum.