Ógeðfelldar fórnir í landsbanka

Bankaráði og bankastjóra Landsbankans verður fórnað til að freista þess að beina athyglinni vegna Borgunarmálsins frá ættingum fjármálaráðherra og honum sjálfum.

Fyrir rúmum 3 vikum spáði ég því í grein minni hér á hringbraut.is að til mannfórna kæmi í Borgunarmálinu og að fjármálaráðherra myndi gera hvað sem þyrfti til að beina athyglinni frá sér og fjölskyldu sinni vegna þessa máls. Hann myndi láta gera allt annað en að fyrirskipa Einari Sveinssyni, föðurbróður sínum, og félögum hans að skila aftur milljarðahagnaðinum sem þessi siðlausi samningur gaf á skömmum tíma.

Ég spáði því að formaður Bankasýslunnar, sem er einn af bestu vinum Bjarna Benediktssonar, yrði látinn koma því til leiðar að skipt yrði um bankaráð í Landsbanka og nýju bankaráði falið að skipta um bankastjóra. Nú er þessi spá að ganga eftir. Í gær tilkynnti Lárus Blöndal að Landsbankinn hefði frest til næstu mánaðarmóta til að gera trúverðuga grein fyrir Borgunarmálinu. Þá var aðalfundi bankans frestað um einn mánuð og verður hann haldinn þann 16. apríl nk.

Það þarf ekki djúpvitra spámenn til að ráða fram úr þessari stöðu. Bjarni Benediktsson ætlar að láta þjóna sína fórna bankaráði og bankastjóra Landsbankans til að beina athyglinni frá siðlausri hagnaðartöku föðurbróður síns og félaga hans í stað þess að knýja þá til að skila illa fengnum hagnaði. 

Verði það niðurstraðan þá er um ógeðfelld vinnubrögð að ræða.

Í grein minni hér á þessum stað þann 20. febrúar sl. sagði ég að enginn sem til þekkti tryði því að Einar Sveinsson hafi ekki rætt um fyrirhugaða fjárfestingu sína í Borgun við frænda sinn fjármálaráðherrann eins nánir og þeir eru. Svo sagði orðrétt:

\"Benedikt Sveinsson faðir Bjarna og Einar bróðir Benedikts hafa verið einkar samrýmdir og samstiga í öllum fjárfestingum í marga áratugi. Sameiginleg verkefni þeirra hafa mörg hver ekki verið í smærri kantinum. En þeir haf jafnan verið samstiga í stórum sem smáum fjárfestingum. Oft hafa synir þeirra verið með í verkefnunum.

Hver trúir því að Einar hafi allt í einu farið að spila sóló þegar kom að Borgun og sniðgengið bróður sinn og náfrændur?

Meðal fyrirtækja sem Benedikt og Einar hafa fjárfest í saman eða með sonum sínum eru þessi: Sjóvá, Íslandsbanki, Hvalur, Eimskip, Nýherji, Flugleiðir, Olíufélagið, N1, Kynnisferðir, Tékkland og Vafningur svo eitthvað sé nefnt. Sameiginlegar fjárfestingar þeirra ná yfir áratugi.”

Bjarni Benediktsson mun sýna vald sitt með mannfórnum í Landsbanka. Honum mun samt ekki takast að hreinsa sig af Borgunarmálinu. Sá draugur mun fylgja honum fram yfir næstu kosningar og skaða fylgi hans og flokksins. Hann lætur það yfir sig ganga því auðsöfnun fjölskyldunnar er mikilvægari en gengi Sjálfstæðisflokksins.

Ég ítreka það sem ég sagði áður: Í Svíþjóð og Danmörku væri stjórnmálamaður í stöðu Bjarna búinn að segja af sér vegna Borgunarmálsins.