Óborganleg Youtube-síða: Talsettu atriði úr Köngulóarmanninum á íslensku

Það eru margir á þeirri skoðun að erlendar kvikmyndir sem hingað koma ættu að vera talsettar á íslensku. Flestar stórþjóðir Evrópu gera slíkt og það lætur engan ósnortinn að fylgjast með Ben Affleck æsa sig á þýsku.

Youtbue síðan „Vondur varalestur“ fór í loftið á dögunum og fyrsta myndbandið sem var birt var allt að því unaðsleg talsetning á atriði úr Köngulóarmanninum með Toby Maguire, Kirsten Dunst og James Franco í aðalhlutverki. Reyndar er titli myndarinnar snarað yfir á hið ylhýra einnig og heitir Vefarinn mikli frá Nýju Jórvík.

Sjón er sögu ríkari: