Á Twittersíðu Bergs Ebba Benediktssonar hófst í gær fjörug umræða um möguleikann á því að Matthías Jochumson hafi drukkið Coca Cola. Raunin er sú að Matthías hefði tæknilega séð getað það, enda samtíðarmaður drykkjarins í tæp fjörtíu ár auk þess að vera bæði víðförull og víðsýnn. Meðal annars ferðaðist Matthías á heimssýninguna í Chicago árið 1893, eins og Gísli Marteinn Baldursson bendir á. Þar sá hann meðal annars rúllustiga í fyrsta skipti. Twitternotandi kallaði eftir því að einhver orti ljóð í anda Matthíasar um rúlllustiga. Twitterhirðskáldið Bragi Valdimar Skúlason var ekki lengi að bregðast við og varpaði fram eftirfarandi stöku, í anda Matthíasar:
Ó, átómat! Ó, undrabraut!
Þú upp til himna líður.
Lyftir sál frá þungri þraut
sem þakklát dómsins bíður.