Vala matt skemmtir skynfærunum

Það er óhætt að segja að skynfærin hafi notið sín til fulls þegar nýr sjónvarpsþáttur Völu Matt fór á skjáinn á Hrringbrautinni í gærkvöld, en þar sviptir hún upp hurðinni á mörgum mest spennandi vertshúsum landsins og fræðir fólk um mat og meira til.

Í þessari nýstárlegu þáttaröð, sem verður eftirleiðis á fimmtudagskvöldum heimsækir Vala Matt nokkur af áhugaverðustu og skemmtilegustu veitingahúsum landsins, en þó einkum og sér í lagi þau vertshús sem sameina það að vera með matreiðslumann (og mat) og umhverfi og hönnun sem eru algjörlega á heimsmælikvarða. Þetta eru hálftíma þættir þar sem hver þáttur er helgaður hverjum veitingastað. Í þáttunum fá áhorfendur ekkert minna en snilldar hugmyndir úr eldhúsinu.

Fyrsti þátturinn, þar sem Bazaar Oddsson er heimsóttur, var á dagskrá í gærkvöld klukkan 20:00 og verður endursýndur í dag og um helgina, en verður svo einnig sjáanlegur á vef stöðvarinnar á næstu dögum.