Stöðugleikinn = stöðug hneyksli

Leikarinn, leikstjórinn og rithöfundurinn Karl Ágúst Úlfsson er mættur aftur til leiks á Hringbraut eftir sumarlanga fjarveru og nú hefur hann allur færst í aukana, enda hefur sonur hans bæst við bráðfyndna ádeilu hans á samfélagið við ysta haf.

Fyrsti þátturinn sem fór í loftið á miðvikudagskvöld var í anda þess sem verður í vetur; þjóðmál líðandi stundar verða skilgreind í skoplegu ljósi, oftast þó eiturbeittu samanber eintölu Karls Ágústs í gærkvöld um stöðugleika Sjálfstæðisflokksins sem færði honum fínan sigur í kosningunum, en stöðugleikinn at arna hefði verið fólginn í stöðugum hneykslum og því hefði flokkurinn einmitt uppskori jafn ríkulega og raunin varð. Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar. 

Og Karl Ágúst er ekki einn á ferð í þessum þáttum; það er Eyvindur Karlsson sem mætir til leiks með föður sínum í þáttaröðinni i vetur og verður eins og hvert annað áherslu- og áhættuatriði í uppistöndum og viðtölum þáttarins, en þar er karl faðir hans búinn að brýna kutann svo um munar í allt sumar - og húmorinn sem áhorfendur mega búast við á næstunni verður í anda tíðarinnar sem er framundan, svartur og kaldur og næðandi. Gestur fyrsta þáttar, að aflokinni eintölu Karls Ágústs, er enginn annar en Ari Eldjárn, en í viðtölum þáttanna í vetur verður lögð áhersla á gamanleikara og uppistandara og aðra þá sem kunna góð skil á skemmtun allskonar.

Eyvindur Karlsson, annar tveggja umsjármanna þáttanna í vetur hefur getið sér gott orð fyrir þýðingar sínar fyrir leiksvið og sjónvarp á undanliðnum árum og sem epli hefur hann ekki fallið fjarri eikinni; hann er leikstjóri að mennt en hefur einnig vakið athygli fyrir uppistand sitt og ritstörf. 

Heiti þáttaraðarinnar er Karl Ágúst og sonur og eru þættirnir frumsýndir öll miðvikudagskvöld klukkan 21:30 - og er eins gott fyrir áhorfendur að fara að liðka hláturvöðvana, annars er hægt við vægri andlitstognun, ef ekki hálsríg og taki í bakið.