Ný föt - sama röddin

BJÖRN BJARNASON FÆR NÝTT ÚTLIT er fyrirsögn lítillar fréttar á baksíðu DV.

Þar kemur fram að andlitslyftingin tekur víst einungis til heimasíðu hans en ekki persónunnar sjálfrar eins og ráða mátti af fyrirsögn blaðsins.

Björn er og verður þröngsýnn einangrunarsinni og í hópi helstu þjóðernispoppulista landsins. Engin útlitsbreyting eða andlitslyfting fær breytt því.

Í þessu sambandi rifjast upp frægt tilsvar Björgvins Halldórssonar þegar vinur hans Bjarni Arason fékk sér spariföt:

\"Ný föt - sama röddin\".