Nú liggur leiðin til fjalla

Ríf öld er liðin frá því leikverkið Fjalla-Eyvindur var frumsýnt á fjölum íslenskum og hefur hróður þessa hryggjarstykkis íslenskra leikhúsbókmennta farið víða um lönd á langri mannsævi. Hér er Jóhann Sigurjónsson í sínu besta formi – og nú þegar Halla fær að vera með í öllu sínu veldi er leikverkið einhvern veginn fullskapað á stóru sviði Þjóðleikhússins. Stefán Hallur er að taka fram úr íslenskum karlleikurunum nú um stundir og Nína Dögg í rullu Höllu er það sem til þarf; sannfærandi og sympatísk í töfrandi túlkun.