Nú er um að gera að hlusta á fólk

Nú er um að gera að gíra sig upp fyrir þjóðlagatónlistarhátíðina Reykjavík Folk Festival sem verður haldin í hinum undurþægilega sal Kex hótels sem kallaður hefur verið Gym og Tónik. Þétt dagskráin hefst 10. mars og stendur yfir til 12. mars - og það verður að segjast alveg eins og er að það er fátt þægilegra og friðvænna í hjarta en að hlusta á íðilfagra tóna þjóðlagafólks sem kann öðrum fremur að laða fram það ljúfa í músíkinni. Þeir listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár eru;  Elín Ey, Valdimar Guðmundsson & Örn Eldjárn, Högni Egilsson, Ellen Krisjánsdóttir & Eyþór Gunnarsson, Ragga Gröndal, Bangoura Band, Ingunn Huld og Skuggamyndir frá Býzans & sóley. Dagskrá hátíðarinnar er ætlað að blanda saman þjóðlagatónlistarmönnum og -hljómsveitum á ólíkum aldri og frá ólíkum áttum innan þjóðlagatónlistarheimsins.